Uppselt
Fara í vöruupplýsingar
1 af 1

SÆR

SÆR

Eyrnalokkar úr línunni Sær eftir orrafinn, með ferskvatnsperlum. Hafið umlykur okkur öll. Sjórinn, undirdjúpin, þetta kraftmikla náttúruafl heillar okkur og hræðir í senn. Við berum óttablandna virðingu fyrir hafinu og krafti þess sem gefur og tekur. Mjúkur og ávalur dropi sem er saklaus í smæð sinni myndar öldu sem með stærð sinni og krafti skapar heilan heim. Galdrar felast í undirdjúpunum þar sem leyndarmálin leynast og furðuverkin verða til. Perla úr skel ratar í keðju um háls, hún er fjársjóður undirdjúpanna, sæborin drottning. Sagan sýnir perluna í stóru hlutverki í verkum meistaranna, Stúlka með perlueyrnalokk greipist í minni okkar með sinni ljóðrænu fegurð. Leyfðu göldrum sædrottningarinnar að fanga þig.

Almennt verð 72,900 kr
Almennt verð 0 kr Útsöluverð 72,900 kr
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.
  • Frí heimsending þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira
  • Skiptimiði fylgir öllum pöntunum á ekki við um sérpantanir
  • Sækja í verslun Kringlan eða Smáralind
Skoða allar upplýsingar
SÆR - OrriFinn72,900 kr
Hönnuðurinn

OrriFinn

Orrifinn skapar táknræna og listræna skartgripi í Reykjavík. Verkin eru unisex, persónuleg og bera með sér sterka tilfinningu fyrir formi og sögu.

Efni
Gull
Karöt gulls
14 kt
Steinn
Perla

Gott að vita

Af hverju dökkna silfurskartgripir?

Silfur getur dökknað þegar það kemst í snertingu við loft, raka, snyrtivörur og önnur efni. Þetta er eðlilegt og þýðir ekki að skartgripurinn sé skemmdur.

Oft er hægt að endurheimta gljáann með silfurklút eða viðeigandi hreinsun. Komdu með gripinn í verslun ef þú ert ekki viss um hvaða aðferð hentar.

Er hægt að gera göt í bæði eyru samtímis?

Hjá börnum átta ára og yngri eru götin gerð í bæði eyru samtímis.

Frá hvaða aldri er hægt að fá göt í eyru?

Aldurstakmark fyrir göt í eyru hjá Meba er tvö ár.

Börn og ungmenni yngri en 18 ára þurfa annaðhvort að vera í fylgd forráðamanns eða hafa skriflegt samþykki frá forráðamanni. Samþykkið má senda á meba@meba.is.

Get ég komið með eigin eyrnalokka?

Nei. Nota þarf sérstaka skotlokka sem passa í götunarbúnað Meba.

Skotlokkarnir eru úr læknastáli og eru nikkelfríir.